Mon Dieu ! Vous êtes arrivé !

Bienvenue à mon blog !

19.01.2008 16:32:11 / seljan69

alive...

 

 

er á lífi... bara nenni ekki þessu blogg drasli lengur... verð eitthvað með á www.blog.central.is/strandarpiur en annars er ég komin í góða pásu frá þessu.......


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 23:31:08 / seljan69

ekkert stress

 

 

vá ég hefði nú ekki trúað þessu fyrr í dag en ég er búin að redda mér þessu öllu (í færslunni fyrir neðan) jibbí og plús örbylgjuofn!:)

 

 

Hildur-ekkert stress, verið hress, bless 


» 9 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 10:40:20 / seljan69

VANTAR!!!

 

 

hæ allir! ég er búin að fá íbúð í Keflavík og mig bráðvantar nokkra hluti!!!

vantar einhverjum að losna við eftirfarandi hluti:

 

Rúm?

Sófa?

Sófaborð?

Eldhúsborð+stóla?


eða bara eitthvað...????

HJÁLP!!! aaaaaaaaaaaa...

 

Hildur-í stressi 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 10:02:21 / seljan69

koffín!!!

 

ég er orðin meiri kaffidrykkjumanneskja eftir að ég byrjaði í HÍ... ætli það tengist félagsskapnum eða hvað?

já núna er ég í tíma í breskri menningarsögu að blogga... en málið er bara það að ég er með 38,5 stiga hita, hálsbólgu og læti svo að ég get varla haldið einbeitingu... veit eiginlega ekki alveg hvað ég er að gera hérna!!!:S I know I'm weird...8)

ég er búin að fá nokkrar einkunnir núna... þær eru svosum bara ágætar miðað við háskóla...

6 fyrir ritgerð

8,5 fyrir ritgerð

7,5 fyrir próf

7,2 fyrir próf

mér gengur sem sagt alveg ágætlega... fyrir utan það að ég er búin að vera slugsandi í heimspekilegum forspjallsvísindum alltof lengi... þetta er bara svo leiðinlegt!!!:$

annars segi ég bara allt fínt... er bara glöð með lífið og tilveruna... bý ennþá hjá Helgu frænku en er á biðlista bæði í Rvk. og í Kef. svo það gæti farið svo að ég myndi flytja á gamla varnarsvæðið... það verður spes...;)

annars langar mig svooooo að fara til útlanda... helst til Sigrúnar minnar...!!! Vill einhver gefa mér pening fyrir flugi til Dk.???:haha: 

...ég fór austur á Rfj. í október í afmælið hans Jóhanns frænda... var náttúrulega uppi á sviði 90% af tímanum... (er alltaf að verða athyglissjúkari) svo átti ég bókað flug með hoppi klukkan 14 daginn eftir... úff... þetta var erfitt... ég fékk ekki að sofa nærri því nóg... fór upp á flugvöll en nei... ekki pláss fyrir mig svo ég þurfti að hanga á Egilsstöðum í þynnkunni í 3 fokking tíma... (mæli ekki með því;)

ég er komin með leiklistarbakteríu og söngbakteríu... langar sjúklega að læra leiklist... er einhver með???:haha:

 

nenni ekki meir...

 

Hildur-háskólanemi 


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 20:42:13 / seljan69

hæ ég er ekki dauð

 

 

...mér var sagt að blogga...

...þó að ég hafi ekkert að segja...

 

gjörðu svo vel Bríet og takk fyrir mig

 

Hildur-letingi 


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.08.2007 13:51:05 / seljan69

In the ghetto...!

Góðann daginn og sælt veri fólkið...

 

Ég er bara búin að vera ansi löt við að blogga undanfarið eins og þið kannski tókuð eftir...

 

...en nú verður breyting á...

 

Ég er flutt í Breiðholtið (eða “gettóið” eins og margir vilja kalla það...) til Helgu frænku... það er alveg dásamlegt... hér hef ég allt til alls og gæti ekki liðið betur... :D

 

Ég er einnig komin með nýja vinnu, þ.e.a.s. á Sóltúni sem er alveg stórglæsilegt hjúkrunarheimili í Borgartúninu... og ég verð að vinna þar alla vega aðra hverja helgi með skólanum...

 

Já og þá er komið að aðal málinu... ég er loksins að hefja háskólanám, nánar tiltekið í ensku... í dag var kynningardagur og mér lýst bara frekar vel á þetta allt saman... þetta er að sjálfsögðu mikið stress og allt það en hvað um það MENNT ER MÁTTUR er það ekki? Ég er sem sé að stefna á að taka síðan kennsluréttindin og verða framhaldsskólakennari...! ;)

 

Sumarið hjá mér er búið að vera alveg yndislegt... mikið af skemmtilegum djömmum og gaman að slaka á í sveitinni áður en alvaran tók við...:D

 

Ég er komin með MySpace... en það er www.myspace.com/hildurseljan ...:) endilega “addið” mér:)

 

Hildur – sem er furðulega glöð í dag


» 8 hafa sagt sína skoðun

05.07.2007 00:31:07 / seljan69

sumar = bloggleti

er ég ein um þetta eða hvað? eru fleiri sem hætta bara að nenna að blogga þegar sólin fer að skína og fuglarnir að syngja...:)

en já hér kemur þetta í grófum dráttum...

ég skellti mér sem sagt til Dk með 10 bekk (tek það fram að ég var þarna sem forráðamaður;) ) en já það var bara alveg hin fínasta ferð og sé ég ekki eftir því að hafa farið í hana... Danmörk baby!!

ég byrjaði að vinna eina ferðina enn á kumbó og gengur það bara sinn vanagang...

Bríet mín og Sigrún mín eru komnar heim!!! Sem sagt Bríet frá Nýja Sjálandi og Sigrún frá Danmörku! :D Gott að fá þær heim...

ég og Svandís skelltum okkur í road trip... fyrst á sauðárkrók og svo á reyðarfjörð... það sem mér fannst skemmtilegast var að sjálfsögðu afmælið hjá Hjördísi frænku... það var algjör snilld!!:haha:

fékk mér þriðja tattúið... stjörnu bakvið eyrað...

ég hélt upp á 21. árs afmælið mitt seinustu helgi... bara svona stelpupartý og svo enduðum við allar á lokadjammi Pakkhússins...:haha:

ég er að fara í bryllup næstu helgi... hlakka mikið til enda fór ég seinast í brúðkaupið hjá mömmu og pabba (og þá var ég 3 ára...!!) já svo er þetta víkingabrúðkaup ( ásatrú ) svo að þetta verður upplifun... en já Jóna skvís og Víðir gæji eru að pússa sig saman!:)

næst á dagskrá er ML reunion... sem verður nokkurs konar "útihátíð" yfir heila helgi! en þetta er bara fyrir þá sem komu í fyrsta bekk árið 2002...!:) hlakka bara til...!!!!

svo er ég að fara í ensku til að byrja með í HÍ núna í vetur svo að ég verð mjög fátæk... :( en maður verður að mennta sig... ég fer á netið á hverjum degi núna til að kíkja á framvindu mála varðandi stúdentagarða (því ekki er ég það vel stæð að ég eigi mína eigins íbúð) en ég krosslegg bara fingur og vona það besta... annars fæ ég að vera hjá Helgu frænku í vetur ef allt bregst svo að ég þarf ekki að óttast það að lenda í pappakassa fyrir utan hlemm... ;)

jæja tími til komin að fara að sofa...

Hildur Seljan - bloggari ársins eða hitt þó heldur!


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 17:25:32 / seljan69

er maðurinn kona?

 

tími til kominn...jæja...

lífið er svosum búið að ganga sinn vanagang... en maí er búin að vera alveg með eindæmum góður mánuður verð ég að segja...:D

Þann 4.maí var skellt sér í leikhús með Kumbaravogskonunum... það var æði, fórum að sjá snillinginn hann Ladda... (synir hans léku líka í sýningunni og vá það er eitthvað við yngsta soninn Þórhall, sem er ég er skotin í:) ) Ég gerði þau mistök samt að sitja hliðiná Gunnhildi :) í miðri sýningunni stendur hún nefnilega upp og ÖSKRAR: ,,ÁFRAM LADDI!" Greyjið Laddi hrökk bara í kút og fór aðeins út af laginu og allur salurinn snéri sér að okkur...8| en þetta var bara fyndið :D Svo var skellt sér á Pakkhúsið eftir sjóið og ég endaði upp í sveit að elta gamla geit...

Já, ég er búin að hlakka mikið til maímánaðar því í lok hans þá hætti ég á Felli, og verð sem sagt á Stokkseyri í sumar. Svo tekur bara háskólinn við og ég er búin að skrá mig í ensku/frönsku en hef því miður engan stað til að búa á svo að ég þarf að sækja um á stúdentagörðum og krossleggja fingurna bara... 8|:)

nú þessi helgi var bara fín... fór út á lífið á föstudaginn með Ásu, Karenu og Hildi og hitti Hákon frænda... þetta var bara fínt kvöld í alla staði, fyrir utan það hvað ég er rosalega óheppin... datt í tröppum og viti menn, tognuð í baki... jú og svo fékk ég mér eina barnamáltíð á leiðinni heim... (fyrir þá sem skilja)

Ég skellti mér til Þórhalls miðils áðan... var búin að hlakka mikið til... það kom margt fram en kannski ekki nógu mikið og ég var að vonast... Langamma (sem ég er skírð í höfuðið á) og afi Indriði komu fram og fylgjast greinilega vel með mér... langamma talaði mikið um hversu nýjungagjörn ég væri og talaði þá aðallega um hárið á mér, sagði að hún hefði ö-a verið lokuð inni ef hún hefði gert þetta á sínum tíma (en allt meint í góðu að sjálfsögðu) jájá svo kom ýmislegt skemmtilegt fram t.d. það að ég væri bara fífl ef ég færi ekki í nám…;) svo í lokin varð ég alveg orðlaus því Þórhallur stóð upp og sagði: ,,Ég verð bara að taka í hendina á þér og kyssa þig því þú ert svo yndiSleg og hrein manneskja…!” Ekki slæmt það…:D Síðan er það önnur leikhúsferð í kvöld en mamma og pabbi voru það indæl að bjóða mér á ÁST í Borgarleikhúsinu... það verður alveg ábyggilega skemmtilegt;)

Svo er það bara Danmörk og Svíþjóð næsta fimmtudag... ég fer nefnilega með 10 bekk BES sem forráðamaður... þetta verður ö-a mikið stuð, við erum sem sagt 3 sem förum með ég, Eyrún og Gaui Guðmunds... svo 17 stykki af hormónaóðum krakkalingum... að sjálfsögðu er maður búin að vippa saman dagskrá fyrir liðið og ég held að ég verði mjög þreytt þegar ég kem heim...

Stefnan er síðan tekin austur í júní með Svandísi pæ og fáum við að hafa Seljateig alveg fyrir okkur (sem er alveg nýuppgert (ættaróðalið sem sagt;) )

jæja… þetta er bara orðið ágætt í bili,

Hildur - sem er ALLTAF Á HAUSNUM…:haha:

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 15:59:08 / seljan69

Vestur á Bolungarvík...!

 

Ég ákvað að bregða undir mig betri fætinum og taka flugið vestur á Ísafjörð...

Byrjaði reyndar ekki vel, átti flug þann 22 en komst ekki fyrr en 23. Þó spillti það nú ekki mikið fyrir...  Á leiðinni vestur (en ég tek það fram að þangað hef ég aldrei flogið) fannst mér eins og ég væri komin á hjara veraldar. Ég lenti á Ísafirði (og þvílík lending hélt bókstaflega að vængurinn á flugvélinni mín megin væri bara komin niður í jörðu!) Hákon frændi tók á móti mér og brunað var beint í búð og svo buðum henni Auði frá Hnífsdal í mat.

Föstudagskvöldið var notað til að fara á barinn á Bolungarvík og þar kynntumst við ansi skemmtilegu og skrautlegu fólki... Aðallega skemmtilegu samt! Ekki náðum við frændsystkinin þó að verða eins skrautleg því Konni var eitthvað lúinn!

Á laugardaginn var svo skellt sér á "svaka show", eða Árshátíð Grunnskóla Bolungarvíkur, þar var hvert atriðið á fætur öðru og var þetta ágætis skemmtun fyrir utan örlitla þynnku sem herjaði á mann. Um kvöldið matreiddi Hákon svo þessar dýrindis lambakótelettur og franskar með. Upp úr ellefu vorum við byrjuð að huga að barnum aftur.

En þá... skyndilega heyrðist fyrir utan; Halló! Halló! Hákon hljóp til dyra og hleypti gestinum inn, en þennan indælis mann hafði hann aldrei séð áður. Nú þessi skemmtilegi karl var nokkuð hress, söng nokkrar vísur og gaf Konna sjúss. Svo lofuðum við bara að hitta hann á ballinu! Jæja um eitt leytið var haldið af stað á barinn... en nei! Barinn lokaður! Við skelltum okkur þá á MÍ ball sem var ofar í þorpinu... þar stóðum við inni í hálftíma og horfðum á ungdóminn skemmta sér! (er maður að eldast!?!) Um tvö leytið vorum við svo að horfa á sjónvarpið þegar útidyrnar opnast og maðurinn kemur inn í heimsókn númer 2! Hákon stendur upp og býðst til að fylgja honum heim. Hann þiggur það, en þeir ná ekki lengra en niður í tröppur, því þar liggur karlinn. Hákon byrjar aðeins að stressast og hringir í sjúkrabíl. Sjúkrabílinn kemur og fer með manninn. Daginn eftir skruppum við í heimsókn á spítalann (sem er by the way svo stórt að ef allir vestfirðir myndu liggja í flensu þá held ég að það væri vel hægt að koma þeim öllum fyrir; sem er náttúrulega bara frábært!) Við fundum hann eftir mikla leit og gáfum honum Aftereight sem Hákon keypti fyrr um daginn (bara svona smá hugulsemi ha?!)... já þetta blessaðist allt!

Síðan kíktum við á Skólahreysti þar sem Grunnskóli Bolungarvíkur bar sigur úr býtum! ...og Hákon kennari náttúrulega alsæll með það!

Við fengum okkur síðan rúnt um Ísafjörð; þar sem ég sá skilti á húsum sem ég hafði bara aldrei á ævi minni séð; VARÚÐ! Snjóhrun af þaki! Afhverju er þetta bara þarna? Getur þetta bara gerst fyrir vestan eða eru Ísfirðingar bara svona duglegir í varúðarráðstöfunum? 

Við fengum okkur bara pizzu síðan og tókum því rólega... Nú í gær var tekinn smá rúntur gegnum Vestfjarðagöng og við enduðum á Suðureyri! Mjög vinalegur bær en svolítið afskekktur finnst mér. Svo var bara knúsað Hákon frænda og skellt sér í flugvél suður!

Frábær helgi...

Verið nú dugleg að kommentera!

Hildur Seljan


» 8 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 14:36:22 / seljan69

it's like a hawiian playing a ukulele!

Halló spalló!!

 

Jæja þá er maður gjörsamlega búin á því eftir öll mín yndislegu þorrablót, en ég er búin að fara á 3 þetta árið!!

 

Fyrsta var á Eyrarbakka (man nú ekkert alltof vel eftir því en það sem ég man var mjög gaman!!)

svo á Stokkseyri (þá passaði maður sig nú, enda var það ekki ég sem endaði handleggsbrotin hjúkket!! en það var mjög gaman, skemmtiatriðin voru nú samt heldur leiðinleg!!)

að lokum var það á Kumbaravogi (langskemmtilegast auðvitað, enda fór maður með leiksigur í þriðja sinn;) svo var náttúrulega dansað algjörlega af sér rassgatið!! Svo var drifið sig á Pakkhúsið með liðinu og dansað ennþá meira þar, elska svoleiðis djömm, DANSIDANS!!)

 

annars segi ég bara allt gott, er búin að leggja hugann alltof lengi í bleyti út af þessum háskóla... en ég er samt held ég búin að ákveða mig svona alla vega... en ég ætla ekki að sjokkera neina núna fyrr en það er endanlega komið á hreint!! :D

 

svo er mars bara byrjaður... ég verð reyndar að vinna allar helgar nema seinustu en þá ætla ég að fara á Bolungarvík að hitta Hákon frænda og vera hjá honum í svona 4-5 daga... hef aldrei komið þangað svo að það verður eitthvað nýtt...!!

 

en maður lætur ekki vinnuna stoppa sig algjörlega því ég held að það sé eitthvað smá djamm hjá Strandarpíunum á morgun...:)

 

svo var ég að pæla... nennir einhver til úglanda í sumar??

 ---> Sviss? England? Frakkland? eitthvað annað?

 

jæja nenni ekki meiru...

bið að heilsa í bæinn;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 19:08:49 / seljan69

Annáll 2006

Jæja elsku dúllurnar mínar!!! :haha:

Ég ákvað að gera smá annál frá síðasta ári (þó að það sé komin febrúar!)

Ok...

Janúar: Brr... byrjaði mína seinustu önn í Fsu og æfði stíft fyrir Þorrablót Kumbaravogs (og var sem sagt ennþá að vinna helgarvinnu þar!)

Febrúar: Losaði mig við mína gömlu Opel Astra og skipti yfir í glænýjan Peugeot 206 (eða RayRay eins og hann er kallaður!;) ) Í miðjum mánuði náði ég þeim stórfenglega árangri að fótbrjóta mig aftur og það á sama stað og í fyrra skiptið!!! (lúði!!!) Í endanum á mánuðinum var Þorrablótið haldið með pompi og prakt og ég hoppaði á öðrum fæti sem fréttakonan Mist Eik út um allt svið! :D

Mars: ég man ekki neitt... held að það hafi ekki verið neitt eftirminnilegt!

Apríl: Dimmitering í risa, gulum Bangsímon búning!!! :haha: Bara gaman!

Maí: Heittþráður áfangi í höfn, orðin stúdína! ;) og auðvitað var stórveisla! :D

Júní: Vann og vann á Kumbó! Þann 30. júní fékk ég loksins ríkisaldurinn, orðin tvítug s.s. já... auðvitað var haldin veisla... Hollywoodpartý and your truly as Marilyn Monroe;) Ég skemmti mér konunglega með þessu brilljant liði sem kom...:D Þetta gekk bara fjandi vel upp, flestir náðu að verða vel fullir þökk sé vel blandaðri bollu Hannesar frænda!;) Toppurinn á veislunni var þó að Hákon frændi flaug frá Reyðarfirði í geimið! :D

Júlí: Fékk loksins svar um að ég væri að fara til Frakklands svo að júlí fór í að vinna sér inn péníng og skipuleggja ferðina (ég veit, ég veit...!)

Ágúst-Október: Fyrst var haldin smá kveðjuveisla fyrir mig með vinkonunum;) Síðan var bara flogið út til Frakklands og eytt þar þrem mánuðum... (gæti skrifað heila ritgerð en nenni því varla) Hér eru samt nokkur orð sem poppa upp í hugann: La Zapata, baguettes, moskítóbit, The Milk, frakkir frakkar (arrg... stokkerar), Aller le Bleu!, vöðmassalögga frá Þýskalandi, salsa dans með Kosta Ríka gaur, vespur, ”Oskubakkkki”, hollensk kökuskrímsli, rauðvín, strandpartý, vinna í þynnku, Desperados (bjór), sætir svisslendingar, tequila race, tognun, flugeldasýning, Crepe avec Nutella, vatnsdrykkja, vælandi Þjóðverji, ítalskar prinsessur, Croque Monsieur, Entrevaux, Cannes, Nice, Mónakó, Frankfurt, London...!

Nóvember: Eftir Frakklandsævintýrið mitt flutti ég beint í bæinn í Skipholtið með vinnu á Felli, í bakaríi og á Kumbó!!! Úff...

Desember: Kaldi, kaldi... vann bara og vann... og vann meira...!!! Í enda desember héldum við svo vinkonuhópurinn (www.blog.central.is/strandarpiur) “Litlu jólin” okkar og var það voða næs! :D Svo komu jólin og ég á næturvöktum en jólin voru samt yndisleg!!!;) Afmælið hennar Bríetar var síðan haldið á Pravda þann 29. des og fengum ég og Ása Ninna Jónsa í svörtum fötum (idolið hennar Bríetar) að koma og syngja fyrir hana...! Það var bara flott! Endaði svo með því að Jónsi gaf henni 4 miða á ballið hjá þeim daginn eftir á Nasa, svo að auðvitað skellti ég mér!!!;) Svo hélt ég upp á áramótin með Sigrúnu minni og co.

Er ég að gleyma einhverju...?

En nú er komið nýtt ár... búin að kaupa kort í baðhúsinu, hætti í bakaríinu, fór á Þorrablót á Eb., komin aftur í skemmtinefnd fyrir Þorrablót Kumbó...:)

Ég er komin með krampa í puttana mína... svo að ég vill fá mikið af kommentum!!!;)

Merci pour l’anneé 2006

Bisous et amour Hildur Seljan;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 00:19:05 / seljan69

Gleðileg jól!!!

Gleðileg jól allir saman!!!

Þakka allt gamalt og gott...!!!

Jólakveðja Hildur Seljan!!!:haha:


» 10 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 18:45:45 / seljan69

ekkert mál...

rosalega er langt síðan ég kom einhverju hérna niður á síðuna... en nú á að fara að bæta úr þessu þar sem að ég er loksins að fá netið í Skipholtið...:)

nóvember mánuður hefur verið frekar fljótur að líða og ég er enn að átta mig á því að ég er ekki að fara í próf...!!!:D en það versta er að ég hef ekki átt mér mikið líf þennan mánuð þar sem að ég hef ekki haft mikið frí enda komin í 3 vinnur og er að bæta mér inn í þá fjórðu. Svo er ég auðvitað búin að flytja allt draslið mitt upp í Skipholt svo ég bý ekki lengur á Stokkseyri...!!! (er enn ekki alveg búin að átta mig á því þar sem að þetta gerðist allt frekar hratt!!!) mig vantar bara tölvuna mína og svo Stöð2... þá er ég orðin sátt!!!8)

ég er samt búin að skella mér á eitt ball og viti menn ég fór svo á Pakkhúsið líka...!!!

nú erum við stelpurnar búnar að koma okkur upp síðu saman svo að hittingar eru að verða fleiri sem betur fer...!!! :)

svo byrjar bara desember á fullu á morgunn... jólin eru að koma og ég er ekki komin í neitt einasta jólastuð... enda kannski ekki búin að fá tíma til þess að átta mig á því að þau eru á næsta leyti...! en jólin eru nú alltaf skemmtileg og ég veit að ég á eftir að komast í jólastuð næstu daga, þegar jólalögin byrja að glymja í útvarpinu og jólaskreytingarnar komnar upp!!!:)

en endilega... allir velkomnir í Skipholtið til mín...

 

kv. Hildur!


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 17:13:33 / seljan69

Ég er komin heim í heiðardalinn... og flutt aftur!!!

Þá er maður lentur, langt síðan reyndar...! Þegar ég lít aftur um öxl (varð að segja þetta) þá finnst mér í heildina á litið þessi Frakklandsferð mjög skemmtileg og sé alls ekki eftir að hafa farið og upplifað þetta, mæli með því!!8)

Ferðin heim gekk vel, fyrir utan þessa djöfuls bið á Heathrow!

Þegar ég kom heim beið mín pizza og daginn eftir var haldin smá fjölskylduveisla með jólamatnum og alles... (ég á náttúrulega bara bestu foreldra í heimigeiminum);)

Ég fékk svo 2 rólega daga og fór svo að vinna á Kumbó... en það breyttist mjög fljótlega þar sem að Guðni bauð mér starf á hinu elliheimilinu sínu Felli... og herbergi sem er í sama húsi en í svona sameiginlegu rými svo að ég deili eldhúsi og baði með nokkrum öðrum krökkum, og er svo með mjög stórt herbergi og þetta er allt á kosta kjörum;)

svo að ef þið viljið kíkja, þá ekki hika...

okei beibí!


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 15:31:09 / seljan69

A sidasta snuningi...

Ja faerslan heitir svo sannarlega rettu nafni og tad eru 2 astaedur fyrir tvi...;

su fyrsta er ad eg er nuna a sidasta snuningi vid ad pakka og taka til eftir mig8)

en onnur er ad i gaermorgunn nadi eg ad snua svona helviti vel upp a haegri fotinn ad eg turfti ad fara til laeknis i annad skipti og viti menn eg get ekki unnid meir fyrir litla skollotta skrattann:klikk: tar sem ad eg teygdi a lidbandi...:|

misheppnud? ja...:lol:

en ja aetli tetta se ekki bara seinasta faerslan her i France tar sem ad eg er ad fara a laugardagsmorgunn aftur heim, ta tarf eg ad fara ut a flugvollinn i Nice um 9 leytid bida tar til 12 en ta flyg eg til London Heathrow og verd vist ad hangsa tar til 9 um kvoldid...8| kem sidan ekki aftur heim fyrr en um midnaetti...:haha:

en nu er bara ad reyna ad njota sidustu dagana (to ad eg megi nu ekki labba mikid)

hlakka otrulega til ad sja ykkur oll aftur...

les dernier bisous...

Hildur TWISTER


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Klukkan
Leitarbox

Some girly wurly...
Fótbolti...
Marylin Monroe (:My Idol:)
Dagsetning
20. mars 2010